Hið leyndardómsfulla RickRoll


youtubeLogo Hið leyndardómsfulla RickRollFrá upphafi Youtube hefur verið rætt um að “RickRolla” einhvern. Eitthvað sem fólk talar um en hinsvegar viðurkennir enginn að vera fórnarlamb.

Að vera RickRollaður ku vera ein sú mesta smán sem nokkur einstaklingur getur orðið fyrir á internetinu og getur haft alvarleg áhrif á sálarlíf viðkomandi. Hinn þekkti sálfræðingur Victor Chavez Hugo skrifaði um frábæra grein þar sem hann staðfesti aldrei tilvist “RickRollsins” heldur ræddi alfarið um þá mögulegu afleiðingar sem slíkt myndband gæti haft miðað við lýsingar “sjónarvotta“. Hann kemur einnig inn á þau líkamlegu áhrif sem myndbandið hefur haft á fólk, meðal annars hárgreiðslu, fatastíl og þá sérstaklega dansstíl.

Þar sem enginn hefur þorað að stíga fram og viðurkenna að vera “RickRollaður” þá hefur þetta lifað manna á milli sem einskonar”urban myth”, eitthvað sem menn hafa í hótunum með og mun sá er opnar slíkt hljóta mikla internet smán.

Eftir ítarlega leit á Youtube og í raun um allt internetið, með leitarvélum eins og AltaVista ásamt leitum í hinum ýmsu MySpace síðum þá hefur tilvist “RickRollsins” ekki fengið staðfest.

Hinsvegar fann ég litla færslu, skrifaða af gömu internet legendi af heimasíðusvæðinu þar sem viðkomandi skilgreinir þessa flökkusögu. Hann talar um myndarlegan mann, sem dansar og syngur. Talar um að gefast ekki upp, valda aldrei vonbrigðum, muni aldrei snúa sér við og særa viðkomandi. Afar hjartahlýr drengur af þessum lýsingum.

Hinsvegar hefur háskólanemi í Bandaríkjunum, innfæddur Ameríkani að nafni Liðþófi Slitinn stundað ítarlegar rannsóknir á viðhorfi internet notenda til þessarar “Urban myth“, þeir sem hafa svarað trúa alfarið á “RickRollið” en eins og ég hef sagt áður þá virðist enginn hafa orðið fyrir þessu.

En sama hvað fólk segir þá slær hótunin um að “RickRolla” einhvern ennþá óhug í huga þeirra sem fyrir hótununni verða.

 

Þetta er föstudagssvar, ekki taka mikið mark á því. RickRollið er sko til, linkarnir eru ekki allir fake. Nokkrir af þeim vísa í raunverulega aðrar síður, kannið það.

 Hið leyndardómsfulla RickRoll

Háskólanemi og faðir úr Kópavoginum.
Nem viðskiptafræði við Háskóla Íslands, með áherslu á markaðsfræði og alþjóðaviðskipti.
Er einnig stofnandi síðunnar.
Skrifa einnig stöku sinnum á mitt eigið blogg, smellið á nafnið mitt og lendið þar.

facebook Hið leyndardómsfulla RickRoll twitter Hið leyndardómsfulla RickRoll linkedin Hið leyndardómsfulla RickRoll google plus Hið leyndardómsfulla RickRoll 

, , ,