Nýjar leiðir


Eitt af því sem gaman getur verið að velta fyrir sér, er hvort hægt sé að finna nýjar leiðir til markaðssetningar á netinu. Leiðirnar eru fjölmargar og oft getur verið gott að skoða það sem er handan við Facebook. Til eru ótrúlega margir samfélagsmiðlar og er sífellt fleira markaðsfólk að átta sig á gagnsemi t.d. Twitter, Youtube, Flickr, Instagram og allra þeirra samfélagsmiðla sem eru í boði. Eins berst manni sífellt oftar til eyrna að íslenskir notendur Facebook eru smátt og smátt að draga úr notkun sinni á þeim miðli og fyrir vikið verður enn fýsilegra að líta í kringum sig eftir nýjum leiðum til að ná til þessa fólks.

Í dag langar mig að fjalla um örfáar afar ólíkar og óhefðbundnar leiðir. Hver um sig er svo sem ekki alveg ný af nálinni en þær hafa hins vegar lítið verið notaðar hérlendis, eftir því sem ég kemst næst.

Rafbækur

Fyrsta nýja leiðin eru rafbækur. Í lok síðasta árs var vefurinn Emma.is settur í loftið, sem er sérstaklega ætlað að selja rafbækur. Eymundsson fylgdi í kjölfarið og er nú hægt að kaupa rafbækur í þeirri verslun. Eitt sem ég kom auga á við að fletta í gegnum fyrri vefinn, var bæklingur frá Nóa og Síríus. Í honum mátti nálgast uppskriftir að smákökum og þess háttar. Í raun er það alveg snilldarhugmynd, að nálgast neytendur á þennan hátt. Og ekki bara fyrir matvælafyrirtæki. Í raun ættu flest fyrirtæki að geta sett saman bæklinga um vörur eða þjónustu og það sem meira er, flest fyrirtæki gera það og mörg bjóða jafnvel aðgengi að pdf skjölum á vefum sínum. Af hverju ekki að gera þessi skjöl að rafbókum? Ég held að flestir í bókageiranum séu sammála um að árið 2012 verði ár rafbókarinnar, hún er að ryðja sér til rúms hérlendis og á síðasta ári fór sala á rafbókum fram úr sölu á hefðbundnum bókum á Amazon. Við Íslendingar eru smátt og smátt að uppgötva þetta form og hvers ættu fyrirtæki ekki að vilja nálgast neytendur sína með þessum hætti. Hægt væri að setja í rafbókarform hluti á borð við kynningarbæklinga, leiðbeiningar, upplýsingar, sölubæklinga, tímarit og annað útgefið efni. Fyrir utan að það kostar minna, þá er það líka samfélagslega ábyrgt, því að gefa út rafbók eða rafbækling er mun grænna en að láta prenta hann.

Vefmyndavélar

Næsta nýja leið er innleiðing vefmyndavéla í þjónustuver eða almannatengsla. Í ljósi þess að flestir netnotendur eru með aðgang að vefmyndavél og jafnvel smartsímaeigendur einnig, þá er í raun bara spurning um hvenær þetta verður tekið upp. Skype, MSN, Google+, Facebook, allt miðlar sem eru farnir að bjóða upp á svona þjónustu og væri hægt að taka inn í rekstur fyrirtækja fyrir lítinn pening. Þetta gerir þjónustuna mun persónulegri, neytandinn er ekki bara að tengjast andlits- og jafnvel nafnlausum talsmanni fyrirtækis eða vörumerkis, heldur ákveðnum einstaklingi og það hefur yfir sér allt annan brag. Þú ert að nálgast neytendur á annan hátt og mín tilfinning er sú, að þeir muni verðlauna slíkt. Reyndar skil ég ekki af hverju fyrirtæki bjóða ekki nú þegar upp á slíkt, sérstaklega t.d. símafyrirtæki sem sum hver hafa verið að markaðssetja myndsímtöl. Myndsímtöl er hægt að nota á svo marga ólíka vegu, t.d. væri hægt að nota þau við kennslu, aðstoð við uppsetningu tækja eða hugbúnaðar, aðstoð í bönkum o.s.frv.

Sharebar

Þriðja nýja leiðin er í raun ekki svo ný, en er hins vegar nokkuð sem gott er að hafa í huga. Í ljósi þess að Facebook virðist vera að missa styrk sinn, þá er ágætt að huga að því að notendur þurfa þá ekki bara að geta deilt efni á þann samfélagsmiðil, heldur þurfa þeir að geta deilt á alla hina líka. Flestar fréttaveitur bjóða í dag upp á að hægt sé að deila fréttum á Facebook, Twitter og Google+, en gallinn er bara sá, að það er ekki nóg. Hvað með Reddit, WordPress, Digg, Delicious, Flickr, gegnum tölvupóst o.s.frv.? Hægt er að fá sharebar á nokkrum stöðum á netinu og er þeim jafn auðveldlega bætt við heimasíðuna þína og social plugin Facebook.

Það eru breytingar í farvatninu, ef svo mætti að orði komast, og þó svo þessi örfáu dæmi sé tiltekin, þá eru mýmargar leiðir að opnast til markaðssetningar og því mikilvægt að vera opinn fyrir nýjungum og láta ekki óttann við breytingar eða mistök halda aftur af sér.

 

 Nýjar leiðir

Þorsteinn Mar

Vefstjóri hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni. Rithöfundur og faðir í Kópavogi. Áhugamaður um samfélagsmiðla.

Þær skoðanir sem birtast hér þurfa ekki að endurspegla skoðanir fyrirtækisins eða stjórnar þess.

facebook Nýjar leiðir twitter Nýjar leiðir 

  • Anonymous

    Væri gaman að taka saman og birta lista yfir þær nýjungar sem eru að koma fram, kannski samhliða því má benda á þessa grein hjá Shareaholic þar sem fjallað er um aukna umferð í gegnum Pinterest http://blog.shareaholic.com/2012/01/pinterest-referral-traffic/