Posts Tagged likes

Ódýra leiðin að árangri á samfélagsmiðlum

Öll erum við að reyna ná skjótum og góðum árangri á samfélagsmiðlum. Skoðanakannanir hafa sýnt, að því fyrr sem síða kemst upp yfir 1000 læk, því betra og því líklegra er að aðrir notendur taki mark á téðri síðu. Samfélagsmiðlagúrúinn Hafsteinn Hafstein Hafsteinsson segir einmitt í grein í tímaritinu Fyrstu skrefin að ekki beri að taka mark á aðdáendasíðu á Facebook fyrr en fjöldi læka sé kominn upp yfir 1500. Enda hafa sum fyrirtæki sem gefa sig út fyrir að vera samfélagsmiðlavæn lagt gríðarlega mikla áherslu á að safna sem flestum aðdáendum.

Helsta mælieiningin sem við notumst því við er magn “læka” eða magn fylgjenda á þessum miðlum. Annað er hreinlega kjánalegt. Þetta fólk er upp til hópa hvort eð er bara að sækjast eftir tilboðum, leikjum, dílum eða einhverju þess háttar. Í nýlegri rannsókn sem nemendur í 6. bekk Hagaskóla gerðu (og var gefin út í bekkjarblaði þeirra í desember) voru niðurstöðurnar sláandi. Hinn almenni Facebooknotandi er karlmaður á þrítugsaldri, heldur með KR og Manchester United, Schumacher í formúlunni og kýs Sjálfstæðisflokkinn. Hann fer í ræktina 3 í viku en þá aðallega til að hitta strákana í sturtu. Hann fer á Facebook 4 sinnum á dag og lækar bara síður sem eru með skemmtilegum leikjum, tilboðum eða dílum. Nema náttúrulega um sé að ræða síður KR, M.U., Schumachers eða Sjálfstæðisflokksins.

Hingað til hefur verið stuðst við leiki til þess að smala fólki í hópum á “læk” síður fyrirtækja þar sem verðmætum lækum er safnað í von um að þetta komi að góðum notum síðar meir. Sé mið tekið af rannsókn 6. bekkjar Hagaskóla, þá er þetta eina og rétta leiðin. Notendur flykkjast um slíkar síður og konur, þar sem þær geta ekki hugsað sjálfstætt (en sýnt hefur verið fram á það í fjölmörgum rannsóknum, vísum við helst til rannsókna Einarssonar og Sveinssonar á undanförnum árum), og því má ætla, ef karlmenn læka við síðu þá muni konur óhjákvæmilega gera það einnig.

Þessir leikir hafa oft háan verðmiða og því kostnaður á hvert “læk” ansi hátt. Hinsvegar hefur orðið breyting á þessum málum. Nú þarftu ekki lengur að sætta þig við skafmiðaleiki, lækleiki, KDL leiki eða hvers kyns annars konar leiki sem kosta bæði fé og tíma.

Með tilkomu vefsíðunnar Fiverr gefst fyrirtækum kost á að kaupa til dæmis “læk” á síður og er verðið stillt í hóf eða $5 eins og nafnið á síðunni gefur til kynna.

Við gerðum óformlega könnun á því sem þar er í boði, fann meðal annars 1000 ekta Twitter fylgjendur fyrir ofan gefið verð eða 630 læk á Facebook síðuna þína fyrir sömu upphæð. 630 læk! Gerðu þetta tvisvar og þá munu hinir fylgja ósjálfrátt með. Það er óhjákvæmilegt. Rétt eins og sólin rís í vestri!

Allar þessar lausnir fyrir $5 sem myndi teljast lítið í samanburði við þá fjármuni sem er verið að ausa í að byggja upp fylgni á þessum miðlum. Það skemmir heldur ekki fyrir að þarna erum við að tala um alþjóðlega fylgjendur svo að markaðurinn opnast all svakalega fyrir þá sem nýta sér þessa þjónustu.

Að byrja með 1000 fylgjendur á Twitter eða 630 “læk” á Facebook myndi teljast ansi gott start inn á þennan markað og því ekki óvitlaust að hefja sig til flugs fyrir einungis $5 og þar með salta samkeppnina á þessum markaði.

 

Þetta er föstudagssvar og ber ekki að taka neitt mark á því, vefsíðan er reyndar til og allir linkar eru virkir. Hinsvegar mælum við á engan hátt með þessu til að ná árangri.

, , , , , , ,

2 Comments

Fleiri læk

 

Eitt af því sem ég er nokkuð oft spurður um í mínu starfi er hvernig hægt sé að fá fleiri vini eða fleiri læk á vörumerkjasíður á Facebook. Það er nefnilega ekkert gefið að öll vörumerki slái umsvifalaust í gegn á Facebook og oft þarf að vinna fyrir hverju einasta læki sem kemur. Þó eru til ótal margar leiðir til að fá fleiri læk og fleiri vini, án þess þó að fara út í Spam-leiki.

Það er hins vegar gott að hafa það í huga, þegar verið að spá í þessi mál, að reyna ná til þeirra sem sannarlega hafa áhuga á téðu vörumerki eða fyrirtæki. Það er til einskis fyrir t.d. sokkabuxnavörumerki að vera með 90% af aðdáendum sínum úr hópi karlmanna á aldrinum 13-16 ára.

Auglýsingar

Samkvæmt því sem kom fram á RIMC 2011 þá koma um 70% læka í gegnum auglýsingar á Facebook. Þennan valkost ætti maður því ekki að hunsa. Það er mjög auðvelt að miða á ákveðna notendur og á nákvæmlega þann hóp sem þú telur markhóp þess vörumerkis eða fyrirtækis sem þú vilt auglýsa. Það er auk þess tiltölulega ódýrt að kaupa auglýsingar á Facebook.

Þetta er undantekningalítið það fyrsta sem ég segi við fólk sem spyr mig. Prófaðu að auglýsa og sjáðu hverju það skilar.

Innihald og gildi

Það vill oft þannig til, að gott innihald auglýsir sig sjálft. Hver hefur ekki deilt t.d. fyndnum auglýsingum og þannig tekið þátt í markaðssetningu vörumerkis á Facebook? Innihaldið getur þannig stundum kallað á fleiri vini og fleiri læk. Myndir, stöðuuppfærslur, myndbönd og allt það getur verið þess eðlist að aðdáendur vilji deila því með vinum sínum.

Ágætt getur verið að tengjast því sem er að gerast hverju sinni, svo lengi sem tengsl eru við viðkomandi vörumerki.

Sem dæmi má nefna nýja auglýsingu Polar Beer, þar sem ísbjörninn kvartar yfir Eurovision að hætti Elvis Prestley. Um 1100 manns hafa deilt því myndbandi þegar þetta er skrifað og fékk aðdáendasíða Polar Beer um 200 ný læk í kjölfarið.

Síður sem hafa gildi (e. value) eiga einnig oft mjög auðvelt með að fá marga aðdáendur. Starbucks er gott dæmi um síðu sem býður aðdáendum sínum upp á gott gildi, en þar geta notendur haft áhrif á Starbuck kaffikortið sitt eða jafnvel gefið vinum sínum kaffibolla í gegnum netið.

Þátttaka aðdáenda

Fáðu aðdáendurnar með þér í lið. Hér á Íslandi hefur þetta verið svolítið ofnotað og þá á eins leiðinlegan hátt og hægt er, þ.e. notendur eru fengnir til að senda öllum vinum sínum boð um að gerast aðdáendur. Það er í fyrsta lagi spam og í öðru lagi bannað skv. reglum Facebook, t.d. lenti mbl.is í því að fólk kvartaði undan þeim og viðlíka athæfi þegar þeir settu sína Facebook síðu í loftið.

Það eru þó til fleiri leiðir til að fá aðdáendur til að taka þátt. Það er jafnvel hægt að fá þá til að láta vini sína vita af tiltekinni vörumerkjasíðu án þess að spamma.

  • Fáðu aðdáendur til að merkja (e. tag) vörumerki inn á myndir. Það er hægt að merkja vörumerkjasíður inn á myndir og myndbönd.
  • Minntu aðdáendur á að merkja vörumerkjasíðuna í stöðuuppfærslum sínum.
  • Farðu þess á leit við aðdáendur að þeir deili myndum, myndböndum og öðru innihaldi.

Leikir og viðbætur

Ein vinsælasta leiðin til að ná í fleiri aðdáendur, að auglýsingum undanskildum, er að vera með leiki hvers konar. Leikirnir geta verið jafn fjölbreyttir og þeir eru margir og í mínum huga þurfa þeir fyrst og fremst að vera einfaldir og/eða skemmtilegir. Það er ekki endilega málið að gefa 42″ 3D sjónvarp (þó svo það sé ekki slæm hugmynd í sjálfu sér) heldur hvað ég þarf að gera til að eiga möguleika á að vinna það.

Gott dæmi um þetta er pizzastaður A. Á hverjum föstudegi gefur viðkomandi pizzastaður pizzuveislu fyrir 6. Eina sem ég þarf að gera er að svara tiltekinni stöðuuppfærslu og láta vita ég vilji vera með í pottinum. Einfalt en þetta hefur áhrif, aðdáendur pizzastaðarins láta vita af þessu (jafnvel til að auka sína eigin möguleika) og það spyrst út að verið sé að gefa pizzur á viðkomandi síðu. Einfaldleiki er að mínu mati mun betri en hafa hlutina flókna.

Viðbætur (e. apps) geta einnig fjölgað aðdáendum, sérstaklega ef þær eru gerðar á svipaðan hátt og Nói&Síríus (með aðstoð Góðra Samskipta) gerðu nú um páskana. Vel hönnuð viðbót getur haft mjög jákvæð áhrif, en þó ber að geta þess, að nær allar viðbætur kalla eftir persónuupplýsingum notenda og í hugum sumra er það neikvætt.

Social plugin

Sú leið sem flestir mæla með í dag er að vera með Social plugin viðbótina frá Facebook sýnilega á heimasíðu vörumerkis. Um er að ræða bæði læk hnappa og athugasemdabox. Hvort heldur sem er getur skilað góðum árangri og í raun mætti segja að þessi leið sé orðin að reglu fremur en valkosti, ef svo mætti að orði komast.

 

Þegar allt kemur til alls, tel ég þó mikilvægast að vörumerki sé sýnilegt, einlægt og tilbúið að taka þátt í umræðunni.

, , , ,

5 Comments