Posts Tagged location based marketing
Markaðssetning út frá staðsetningu
Með síaukinni notkun snjallsíma hafa opnast nýjar leiðir í markaðssetningu. Tilkoma smáforrita (e. apps) og m-síðna er aðeins hluti þeirra möguleika sem standa markaðsfólki til boða. Vissulega eru þetta öflugar leiðir, nýjar og ferskar, og skemmst er að minnast þess er Síminn kynnti QR kóðann svo eftirminnilega fyrir landsmönnum í Morgunblaðinu á sínum. Það er þó ein leið enn sem hægt er að nota og tengist annars vegar notkun samfélagsmiðla og hins vegar snjallsíma (jafnvel er hægt að nota 3G síma), sú leið er markaðssetning út frá staðsetningu (e. location based marketing).
Markaðssetning sem þessi styðst við síður á borð við Foursquare, Yelp!, Facebook Places eða hvaða annan hugbúnað sem í boði er. Til eru þó nokkrar síður sem ganga út á staðsetningu en þær miða flestar að því að notandi sé með snjallsíma og opið fyrir GPS þjónustu í símanum. Notandinn getur síðan skráð sig inn á staðinn (e. check in) og þannig fengið upplýsingar frá öðrum notendum, tilboð eða hvað annað sem tengist staðnum. Jafnvel er hægt að sjá hverjir eru á viðkomandi stað á þeim tíma.
Það eru nokkur atriði sem er gott að hafa í huga ef ætlunin er að fara út í þess háttar markaðssetningu. Flest þessara atriða má heimfæra á hvers lags markaðssetningu sem er.
Miðlarnir
Þekktu þá miðla sem standa þér til boða. Hérlendis er Facebook mjög öflugur samfélagsmiðill, en eru allir snjallsímanotendur (um 20-23% farsímanotenda) að nota Facebook Places? Skoðaðu hvar markhópurinn er, hvaða miðil er hann að nota?
Einnig er ágætt að skoða hvernig miðlarnir nýtast. Er auðveldara að koma tilboðum á framfæri í gegnum Foursquare, Gowalla eða Facebook Places?
Miðillinn í sjálfu sér á ekki að skipta höfuðmáli, heldur hvernig hann nýttur og hvað hann hefur upp á að bjóða, annars vegar fyrir þig og hins vegar notandann.
Markmið
Markaðssetning væri til einskis án markmiða. Settu þér skýr markmið og hafðu þau að leiðarljósi í því sem þú tekur þér fyrir hendur. Hvort sem þau eru að vekja athygli á staðnum, koma tilboðum á framfæri eða fá umsagnir viðskiptavina.
Til að ná góðum árangri þurfa markmiðin að vera skýr og frekar færri en fleiri. Það getur einnig hjálpað að láta notendur vita, t.d. ef markmiðið er að fá umsagnir viðskiptavina að biðja notendur um að skilja eftir umsögn eða skilaboð til eigenda/rekstraraðila staðar.
Mundu að mæla. Ef þú mælir ekki hvort markmiðum hefur verið náð geturðu ekki sagt til um hversu góð markaðssetningin var.
Láttu vita af þér
Það er eitt að búa til stað á Foursquare. Í sjálfu sér er það ágætt en eitt og sér skilar það ekki miklu. Hafðu vörumerki Foursquare sýnilegt í anddyrinu, á matseðli eða hvar sem hugsanlegir notendur geta séð það og þannig komist að því að viðkomandi stað er hægt að finna á Foursquare. Láttu þannig offline og online haldast í hendur. Þetta er einnig hægt að gera með QR kóða, en ég set þann fyrirvara á það, að QR kóðinn er mjög í tísku um þessar mundir og mig grunar ef hann verður ofnotaður, að notendur hætti að nenna að skanna alla þessa kóða. Þannig munu þeir missa gildi sitt.
Fyrir skemmstu fór ég á Hamborgarafabrikku þeirra Simma og Jóa. Strax þar við innganginn er stórt Foursquare merki og því fór ekkert á milli mála til hvers var ætlast. Ég mæli eindregið með því að svona sé gert, þetta lætur notendur vita að staðurinn er finnanlegur á netinu.
Gildi
Gefðu notendum eitthvað sem hefur gildi. Það skiptir máli til að draga til sín notendur. Þetta á jafnt við um notendur samfélagsmiðla sem og notendur sem koma í gegnum markaðssetningu út frá staðsetningu. Gildi getur verið eitthvað mjög einfalt (Færð frían kaffibolla við fyrstu innskráningu, Skráðu þig inn og þú átt möguleika á að vinna I-pad) eða flóknara (5. hver innskráning fær glaðning, Hver innskráning gefur 10 punkta osfrv.).
Hægt er að gera þetta gildi enn öflugra með sértækri aðlögun (e. customizing), t.d. væri hægt að búa til sértilboð aðeins fyrir notendur, sérstaka to-do lista, verðlauna umsagnir og svo mætti lengi telja.
Taktu þátt!
Ekki hika við að taka þátt í umræðunni. Ef notendur þínir hafa áhuga á að spjalla við þig, ekki halda aftur af þér. Mundu að öll viðvera á samfélagsmiðlum kallar á samtal, ekki bara einhliða miðlun.
Gættu þín!
Ekki búa til gervinotendur sem setja inn falskar umsagnir. Ef það kemst upp, ertu í djúpum…
Heiðarleiki margborgar sig og það er betra að taka með brosi á móti gagnrýni en að svara með þjósti og hroka.
Markaðssetning út frá staðsetningu og samfélagsmiðlum er frábært tæki, því þar kemstu í snertingu við þá sem eru á staðnum, eru að nota þjónustu, vörumerki eða það sem þú hefur upp á að bjóða og jafnvel í rauntíma. Er hægt að biðja um betri tengingu við viðskiptavini?
Þessi færsla hefur áður birst á http://hrollvekjur.blog.is/samfelagsmidlar

Nýleg ummæli