Posts Tagged markmið
Árangur mældur
Hvernig er hægt að meta hversu mikill árangur hefur náðst í markaðssetningu á samfélagsmiðlum? Þessari spurningu er virkilega erfitt að svara, því markaðssetning á slíkum miðlum snýst ekki bara um sýnileika, smelli, heimsóknir eða hversu oft fólk taggar sig á myndum hjá vörumerki eða fyrirtæki. Hún snýst heldur ekki bara um læk, athugasemdir, þátttöku í leikjum eða hvað annað sem þú kannt að taka upp á, heldur snýst hún að taka þátt í umræðunni, vera til staðar og hlusta. Virkja aðdáendur og vera til í að hlusta á kvartanir þeirra og hrós. Skapa sambönd milli neytanda og vörumerkis eða fyrirtækis sem þýða eitthvað og hafa gildi fyrir báða aðila.
Það er auðvelt að mæla árangur á netinu. Flestir setja sér einhver markmið við viðveru vörumerkis eða fyrirtækis á samfélagsmiðlum og oftast nær eru þau markmið tölfræðileg, t.d. við ætlum að fá 10.000 aðdáendur á Facebook síðuna okkar. Gott markmið í sjálfu í sér og auðvelt að mæla árangurinn. Facebook býður upp á að markmið geti verið í fleiri þáttum, t.d. hversu margir koma inn á síðuna á hverjum degi, hversu margir læka, hversu margir deila, hversu margir tagga eða hve stórt hlutfall aðdáenda er karlkyns eða kvenkyns. Öll þessi atriði mæla í raun hegðun notanda á téðum miðli, á hvað hann smellir o.þ.h.
Ég velti stundum fyrir mér hvort það sé í raun sá árangur sem mestu skiptir. Auðvitað er mjög gaman að sjá yfir 50.000 like á aðdáendasíðunni sinni, enn skemmtilegra að sjá svarhlutfall yfir 3%. En segir þetta alla söguna? Sagan sýnir að svo er ekki, heldur þarf að setja allar þessar tölu í samhengi. Iceland Express er með um og yfir 20 þúsund like á aðdáendasíðunni sinni og á sínum tíma voru gríðarlega margir sem svöruðu stöðuuppfærslun hjá þeim en mjög oft var það til að lýsa yfir óánægju sinni. Þá spyr maður sig, þeir sem lækuðu síðuna voru það aðdáendur eða fólk sem vildi geta fengið útrás fyrir pirring sinn út í fyrirtækið? Og ef markmiðið var að ná síðunni yfir 20k læk og 1% svarhlutfall, náðust þau? Eða skipti ánægja áðdáenda og sambandið við þá ekki máli?
Ég tel að það sé ekki hægt að leggja mælistiku á og meta það samband sem vörumerki getur haft og eignast við neytendur og viðskiptavini í gegnum samfélagsmiðla. Mér finnst þar af leiðir ekki öllu máli skipta hvort það eru 100, 1000 eða 10.000 aðdáendur á síðu, heldur hvernig er unnið með aðdáendum. Þessir 100 geta verið miklu verðmætari sem aðdáendur en þessir 10.000, ef svo ber undir. Að skapa tengsl er lykilatriði í þessu. Veita aðdáendum færi á að nálgast þig. Hvernig metur maður slík tengsl? Hvernig er hægt að leggja mælistiku á það að geta komist í beint samband við vörumerki, hvort sem maður þarf að kvarta eða hrósa? Færið sem fólk fékk á aðdáendasíðu Iceland Express er að mínu mati ómetanlegt, bæði fyrir neytendur og fyrirtækið (sérstaklega ef fyrirtækið hefði gert meira í því að rækta það samband og svara öllum).
Mælið því það sem er mælanlegt en beitið skynsemi í mati á öðrum þáttum. Það er ekki hægt að mæla samband föður eða móður við barn sitt, heldur mótast það með hverjum degi sem líður, verður ríkara og flóknara. Hið sama gildir um samband vörumerkis og notenda á netinu, það þarf að hlúa að þeim og byggja þau upp og árangur þess starfs er ómetanlegur.
Markaðssetning út frá staðsetningu
Með síaukinni notkun snjallsíma hafa opnast nýjar leiðir í markaðssetningu. Tilkoma smáforrita (e. apps) og m-síðna er aðeins hluti þeirra möguleika sem standa markaðsfólki til boða. Vissulega eru þetta öflugar leiðir, nýjar og ferskar, og skemmst er að minnast þess er Síminn kynnti QR kóðann svo eftirminnilega fyrir landsmönnum í Morgunblaðinu á sínum. Það er þó ein leið enn sem hægt er að nota og tengist annars vegar notkun samfélagsmiðla og hins vegar snjallsíma (jafnvel er hægt að nota 3G síma), sú leið er markaðssetning út frá staðsetningu (e. location based marketing).
Markaðssetning sem þessi styðst við síður á borð við Foursquare, Yelp!, Facebook Places eða hvaða annan hugbúnað sem í boði er. Til eru þó nokkrar síður sem ganga út á staðsetningu en þær miða flestar að því að notandi sé með snjallsíma og opið fyrir GPS þjónustu í símanum. Notandinn getur síðan skráð sig inn á staðinn (e. check in) og þannig fengið upplýsingar frá öðrum notendum, tilboð eða hvað annað sem tengist staðnum. Jafnvel er hægt að sjá hverjir eru á viðkomandi stað á þeim tíma.
Það eru nokkur atriði sem er gott að hafa í huga ef ætlunin er að fara út í þess háttar markaðssetningu. Flest þessara atriða má heimfæra á hvers lags markaðssetningu sem er.
Miðlarnir
Þekktu þá miðla sem standa þér til boða. Hérlendis er Facebook mjög öflugur samfélagsmiðill, en eru allir snjallsímanotendur (um 20-23% farsímanotenda) að nota Facebook Places? Skoðaðu hvar markhópurinn er, hvaða miðil er hann að nota?
Einnig er ágætt að skoða hvernig miðlarnir nýtast. Er auðveldara að koma tilboðum á framfæri í gegnum Foursquare, Gowalla eða Facebook Places?
Miðillinn í sjálfu sér á ekki að skipta höfuðmáli, heldur hvernig hann nýttur og hvað hann hefur upp á að bjóða, annars vegar fyrir þig og hins vegar notandann.
Markmið
Markaðssetning væri til einskis án markmiða. Settu þér skýr markmið og hafðu þau að leiðarljósi í því sem þú tekur þér fyrir hendur. Hvort sem þau eru að vekja athygli á staðnum, koma tilboðum á framfæri eða fá umsagnir viðskiptavina.
Til að ná góðum árangri þurfa markmiðin að vera skýr og frekar færri en fleiri. Það getur einnig hjálpað að láta notendur vita, t.d. ef markmiðið er að fá umsagnir viðskiptavina að biðja notendur um að skilja eftir umsögn eða skilaboð til eigenda/rekstraraðila staðar.
Mundu að mæla. Ef þú mælir ekki hvort markmiðum hefur verið náð geturðu ekki sagt til um hversu góð markaðssetningin var.
Láttu vita af þér
Það er eitt að búa til stað á Foursquare. Í sjálfu sér er það ágætt en eitt og sér skilar það ekki miklu. Hafðu vörumerki Foursquare sýnilegt í anddyrinu, á matseðli eða hvar sem hugsanlegir notendur geta séð það og þannig komist að því að viðkomandi stað er hægt að finna á Foursquare. Láttu þannig offline og online haldast í hendur. Þetta er einnig hægt að gera með QR kóða, en ég set þann fyrirvara á það, að QR kóðinn er mjög í tísku um þessar mundir og mig grunar ef hann verður ofnotaður, að notendur hætti að nenna að skanna alla þessa kóða. Þannig munu þeir missa gildi sitt.
Fyrir skemmstu fór ég á Hamborgarafabrikku þeirra Simma og Jóa. Strax þar við innganginn er stórt Foursquare merki og því fór ekkert á milli mála til hvers var ætlast. Ég mæli eindregið með því að svona sé gert, þetta lætur notendur vita að staðurinn er finnanlegur á netinu.
Gildi
Gefðu notendum eitthvað sem hefur gildi. Það skiptir máli til að draga til sín notendur. Þetta á jafnt við um notendur samfélagsmiðla sem og notendur sem koma í gegnum markaðssetningu út frá staðsetningu. Gildi getur verið eitthvað mjög einfalt (Færð frían kaffibolla við fyrstu innskráningu, Skráðu þig inn og þú átt möguleika á að vinna I-pad) eða flóknara (5. hver innskráning fær glaðning, Hver innskráning gefur 10 punkta osfrv.).
Hægt er að gera þetta gildi enn öflugra með sértækri aðlögun (e. customizing), t.d. væri hægt að búa til sértilboð aðeins fyrir notendur, sérstaka to-do lista, verðlauna umsagnir og svo mætti lengi telja.
Taktu þátt!
Ekki hika við að taka þátt í umræðunni. Ef notendur þínir hafa áhuga á að spjalla við þig, ekki halda aftur af þér. Mundu að öll viðvera á samfélagsmiðlum kallar á samtal, ekki bara einhliða miðlun.
Gættu þín!
Ekki búa til gervinotendur sem setja inn falskar umsagnir. Ef það kemst upp, ertu í djúpum…
Heiðarleiki margborgar sig og það er betra að taka með brosi á móti gagnrýni en að svara með þjósti og hroka.
Markaðssetning út frá staðsetningu og samfélagsmiðlum er frábært tæki, því þar kemstu í snertingu við þá sem eru á staðnum, eru að nota þjónustu, vörumerki eða það sem þú hefur upp á að bjóða og jafnvel í rauntíma. Er hægt að biðja um betri tengingu við viðskiptavini?
Þessi færsla hefur áður birst á http://hrollvekjur.blog.is/samfelagsmidlar
Nauðsyn markmiðasetningar í markaðsaðgerðum
Posted by thorarinnh in Almennt on September 19, 2011
Án þess að vera með skýr markmið er hætt við því að árangurinn verði lítill sem enginn. Markmiðasetning ætti því að vera fyrsta skrefið í öllum markaðsaðgerðum.
Skoðum fyrst af hverju nauðsynlegt er að setja sér markmið.
Það er sama hvort farið er í blaðaauglýsingar, útvarspauglýsingar, vefborða eða Facebook aðgerðir þá er mikilvægt að vera búinn að ákveða hvert markmiðið er, ætlum við að selja x mikið af tiltekinni vöru, ætlum við að ná x mörgum á póstlistann okkar eða eignast x marga aðdáendur á Facebook.
Takið eftir að öll þessi markmið eru mælanlega, en án mælinga er erfitt að sjá hvort aðgerðin sem farið var í hafi borði árangur eða hvort þetta hafi verið sóun á peningum. Allt snýst þetta í raun um að hámarka nýtingu fjármagnsins við markaðsaðgerðina.
Allar athafnir verða að vera með markmið og mælanleika í fyrirrúmi.
Þar sem færslurnar hérna á undan fjalla um samfélagsmiðla þá langar mig til að halda áfram á þeim nótum.
Tökum sem dæmi þær fjölmörgu herferðir sem dynja á Facebook notendum þessa dagana, um að taka þátt í hinum allskonar leikjum sem hannaðir eru til að safna lækum á Facebook. Ég get svo sem ekkert sagt til um það hvort aðstandendur þessarra leikja séu með langtíma markmið, hins vegar eru klár skammtímamarkmið þar á ferð. Ná sem flestum lækum á sem skemmstum tíma.
Hvernig er síðan unnið með þessi læk er allt annað mál. Hægt er að deila um það hvort nýting fjármagnsins sé rétt, ætti frekar að byggja upp sterka viðveru á lengri tíma með langtímamarkmið í huga eða byggja snöggt upp aðdáandagrunn og vona að þau skilaboð sem munu koma í kjölfar leiksins falli vel í kramið hjá þeim.
Út frá þeim hugleiðingum er hægt að spyrja sig, eru þeir sem læka leikinn raunverulegir viðskiptavinir þínir? Eða voru þeir bara að læka í von um að vinna eitthvað?
Aftur að markmiðasetningunni, þá sérðu að hún er grunnurinn að öllu sem getur talist markaðsstarf. Án skýrra markmiða er hætt við að nýting fjármagnsins verði ekki með besta móti og að niðurstaðan verði ekki sú sem óskað var eftir í upphafi.
Mælanleiki er eitthvað sem hlýst af skýrri markmiðasetningu, ef þú ætlar þér að ná x mörgum á póstlistann þinn þá ertu kominn með eitthvað til að stefna að og getur alltaf fylgst með árangri herferðarinnar.
Markmiðasetning er lykillinn.

Nýleg ummæli