Posts Tagged staðsetning

Foursquare

 

140311130205fsquare 300x225 FoursquareEftir því sem fjöldi þeirra sem eru með snjallsíma vex því mikilvægara verður að vera sýnilegur á þeim miðlum sem tengjast símunum hvað mest. Foursquare er einn þeirra miðla, en það er samfélagsmiðill sem gengur út á staðsetningar, t.d. kaffihús, verslunarmiðstöðvar og þess háttar. Notendur geta unnið sér inn stig og verðlaun með því að skrá sig inn á staðsetningar og um leið láta þér vini sína vita hvar þá er að finna.

Einhver fyrirtæki hérlendis eru farin að notfæra sér þennan miðil til markaðssetningar, t.d. Hamborgarafabrikan en því miður alltof fá. Foursquare er frábær leið til að ná til neytenda og í raun sjá notendur um það að markaðssetja fyrir þig, þ.e. með því að skrá sig inn á staðsetninguna sem þú sérð um. Auk þess geta notendur sett inn skilaboð um þjónustu og gæðin sem þú hefur upp á að bjóða og þar með stuðlað að word-of-mouth áhrifum á netinu.

Hér eru nokkrar hugleiðingar um hvernig þú getur tekið Foursquare og notað til markaðssetningar:

1. Claim your Venue

Þetta er algjört grunnatriði. Með því að taka stjórn á staðsetningunni þinni geturðu sett inn hvers kyns tilboð og leiki fyrir notendur, t.d. þar sem þeir geta fengið sérstök verðlaun.

Það er ekki hægt að gera slíkt hið sama ef maður er aðalmaðurinn (e. mayor) á viðkomandi staðsetningu. Þú þarft að hafa tekið yfir staðsetninguna til að skipuleggja slíkt.

Tilboð geta verið hvers konar. Leikir eða sérstök verðlaun er hægt að tengja við t.d. fjölda þeirra sem skrá sig inn á staðsetninguna á ákveðnum tíma.

2. Láttu vita af þér

Það er ekki nóg að búa til staðsetningu og halda þá að hlutirnir gerist af sjálfum sér. Fæstir eru það virkir af sjálfu sér að leita sífellt uppi nýjar staðsetningar, heldur þarf að láta fólk vita. Og ég er þeirrar skoðunar að netið eitt og sér er ekki nóg til þess. Af hverju ekki að setja lítið Foursquare merki á matseðilinn? Í gluggann eða á annan sýnilegan stað? Þannig vita þeir sem mæta á viðkomandi stað, að hægt er að skrá sig inn á Foursquare þarna.

Hið sama gildir um Facebook Places og jafnvel aðdáendasíður. Sem betur fer eru fyrirtæki og vörumerki aðeins að ranka við sér með að láta vita í auglýsingum sínum af aðdáendasíðum sínum, en ég vil ganga lengra. Ég vil helst fá að vita það um leið og ég geng inn í búð, á veitingastað eða jafnvel bara verslunarmiðstöð, að ég geti fundið viðkomandi á samfélagsmiðlum, sérstaklega þegar þeir eru jafn sterkir og raun ber vitni hérlendis.

3. Hafðu gildi (e. value) fyrir notendur 

Eins og ég kom inn á áðan þá getur sá sem stjórnar staðsetningu sett inn hvers konar tilboð og verðlaun fyrir notendur. Þetta skiptir máli, því þannig græðir notandinn eitthvað á því að skrá sig inn á tiltekna staðsetningu.

Einu sinni voru Sambíóin með bluetooth kerfi í gangi hjá sér, þar sem notendur gátu náð í bakgrunnsmyndir fyrir síma eða jafnvel stiklur úr bíómyndum. Ég var aldrei sérstaklega hrifinn af þeirri notkun á annars ágætri hugmynd, þ.e. að nota bluetooth til markaðssetningar, þar sem mér fannst ég ekki græða neitt á því kveikja á bluetooth hjá mér. Hefði ég hins vegar fengið 25% afslátt af popp og kók eða sérstakt bluetooth tilboð á einhverjum vörum, hefði það breytt heilmiklu. Þannig mætti segja að það hafi vantað alvöru gildi í markaðssetningu þeirra, þ.e. gildi fyrir notandann.

Gildi getur verið svo margt, t.d. á bar gæti það verið stór bjór á 500 kr. ef þú skráir þig inn, á meðan á veitingastað gætu endurkomur verið verðlaunaðar, t.d. í þriðja sinn sem þú mætir færðu 2 fyrir 1 af matseðli. Jafnvel tengt saman verðlaunakerfi Foursquare og gildi, t.d. ef næst horde verðlaunamerkið (margir skráðir inn á sama stað á sama tíma) þá fá allir sem skráðu sig inn eitthvað.

4. Vertu persónulegur

Netið er ekki hliðstæður veruleiki sem snertir okkur á engan hátt í raunveruleikanum. Netið er hluti af menningunni og því hver við erum. Ef þú ert umsjónarmaður staðsetningar og þú sérð einhvern skrá sig inn, sjáðu hvort þú getir ekki fundið hann á staðnum. Gefðu þig á tal við viðkomandi og þakkaðu honum fyrir. Ef þú ert feimin/-nn geturðu jafnvel útbúið einfalda þakkarmiða. Sýndu þeim sem skráði sig inn, að þú kannt annars vegar að meta að viðkomandi skuli hafa skráð sig inn (hann er jú að stuðla að markaðssetningu fyrir, algjörlega ókeypis og af fúsum og frjálsum vilja) og hins vegar, að það er einhver persóna eða persónur á bakvið staðsetninguna, vörumerkið eða fyrirtækið. Ég held að langflestir taki slíku mjög vel og verði jafnvel upp með sér. Þannig ertu um leið að láta notandann upplifa að hann hafi gert eitthvað sem skiptir einhvern máli (e. feel empowered).

 

Þetta eru bara örfá atriði sem ég tel að gott sé að hafa í huga varðandi Foursquare. Um leið og maður fer að kafa ofan í þennan samfélagsvef kemur maður auga á miklu fleiri leiðir en þessar til að gera markaðssetningu út frá Foursquare fýsilegan kost.

, , , , ,

No Comments

Markaðssetning út frá staðsetningu

 Markaðssetning út frá staðsetninguMeð síaukinni notkun snjallsíma hafa opnast nýjar leiðir í markaðssetningu. Tilkoma smáforrita (e. apps) og m-síðna er aðeins hluti þeirra möguleika sem standa markaðsfólki til boða. Vissulega eru þetta öflugar leiðir, nýjar og ferskar, og skemmst er að minnast þess er Síminn kynnti QR kóðann svo eftirminnilega fyrir landsmönnum í Morgunblaðinu á sínum. Það er þó ein leið enn sem hægt er að nota og tengist annars vegar notkun samfélagsmiðla og hins vegar snjallsíma (jafnvel er hægt að nota 3G síma), sú leið er markaðssetning út frá staðsetningu (e. location based marketing).

Markaðssetning sem þessi styðst við síður á borð við Foursquare, Yelp!, Facebook Places eða hvaða annan hugbúnað sem í boði er. Til eru þó nokkrar síður sem ganga út á staðsetningu en þær miða flestar að því að notandi sé með snjallsíma og opið fyrir GPS þjónustu í símanum. Notandinn getur síðan skráð sig inn á staðinn (e. check in) og þannig fengið upplýsingar frá öðrum notendum, tilboð eða hvað annað sem tengist staðnum. Jafnvel er hægt að sjá hverjir eru á viðkomandi stað á þeim tíma.

Það eru nokkur atriði sem er gott að hafa í huga ef ætlunin er að fara út í þess háttar markaðssetningu. Flest þessara atriða má heimfæra á hvers lags markaðssetningu sem er.

Miðlarnir

Þekktu þá miðla sem standa þér til boða. Hérlendis er Facebook mjög öflugur samfélagsmiðill, en eru allir snjallsímanotendur (um 20-23% farsímanotenda) að nota Facebook Places? Skoðaðu hvar markhópurinn er, hvaða miðil er hann að nota?

Einnig er ágætt að skoða hvernig miðlarnir nýtast. Er auðveldara að koma tilboðum á framfæri í gegnum Foursquare, Gowalla eða Facebook Places?

Miðillinn í sjálfu sér á ekki að skipta höfuðmáli, heldur hvernig hann nýttur og hvað hann hefur upp á að bjóða, annars vegar fyrir þig og hins vegar notandann.

Markmið

Markaðssetning væri til einskis án markmiða. Settu þér skýr markmið og hafðu þau að leiðarljósi í því sem þú tekur þér fyrir hendur. Hvort sem þau eru að vekja athygli á staðnum, koma tilboðum á framfæri eða fá umsagnir viðskiptavina.

Til að ná góðum árangri þurfa markmiðin að vera skýr og frekar færri en fleiri. Það getur einnig hjálpað að láta notendur vita, t.d. ef markmiðið er að fá umsagnir viðskiptavina að biðja notendur um að skilja eftir umsögn eða skilaboð til eigenda/rekstraraðila staðar.

Mundu að mæla. Ef þú mælir ekki hvort markmiðum hefur verið náð geturðu ekki sagt til um hversu góð markaðssetningin var.

Láttu vita af þér

Það er eitt að búa til stað á Foursquare. Í sjálfu sér er það ágætt en eitt og sér skilar það ekki miklu. Hafðu vörumerki Foursquare sýnilegt í anddyrinu, á matseðli eða hvar sem hugsanlegir notendur geta séð það og þannig komist að því að viðkomandi stað er hægt að finna á Foursquare. Láttu þannig offline og online haldast í hendur. Þetta er einnig hægt að gera með QR kóða, en ég set þann fyrirvara á það, að QR kóðinn er mjög í tísku um þessar mundir og mig grunar ef hann verður ofnotaður, að notendur hætti að nenna að skanna alla þessa kóða. Þannig munu þeir missa gildi sitt.

Fyrir skemmstu fór ég á Hamborgarafabrikku þeirra Simma og Jóa. Strax þar við innganginn er stórt Foursquare merki og því fór ekkert á milli mála til hvers var ætlast. Ég mæli eindregið með því að svona sé gert, þetta lætur notendur vita að staðurinn er finnanlegur á netinu.

Gildi

Gefðu notendum eitthvað sem hefur gildi. Það skiptir máli til að draga til sín notendur. Þetta á jafnt við um notendur samfélagsmiðla sem og notendur sem koma í gegnum markaðssetningu út frá staðsetningu. Gildi getur verið eitthvað mjög einfalt (Færð frían kaffibolla við fyrstu innskráningu, Skráðu þig inn og þú átt möguleika á að vinna I-pad) eða flóknara (5. hver innskráning fær glaðning, Hver innskráning gefur 10 punkta osfrv.).

Hægt er að gera þetta gildi enn öflugra með sértækri aðlögun (e. customizing), t.d. væri hægt að búa til sértilboð aðeins fyrir notendur, sérstaka to-do lista, verðlauna umsagnir og svo mætti lengi telja.

Taktu þátt!

Ekki hika við að taka þátt í umræðunni. Ef notendur þínir hafa áhuga á að spjalla við þig, ekki halda aftur af þér. Mundu að öll viðvera á samfélagsmiðlum kallar á samtal, ekki bara einhliða miðlun.

Gættu þín!

Ekki búa til gervinotendur sem setja inn falskar umsagnir. Ef það kemst upp, ertu í djúpum…

Heiðarleiki margborgar sig og það er betra að taka með brosi á móti gagnrýni en að svara með þjósti og hroka.

Markaðssetning út frá staðsetningu og samfélagsmiðlum er frábært tæki, því þar kemstu í snertingu við þá sem eru á staðnum, eru að nota þjónustu, vörumerki eða það sem þú hefur upp á að bjóða og jafnvel í rauntíma. Er hægt að biðja um betri tengingu við viðskiptavini?

Þessi færsla hefur áður birst á http://hrollvekjur.blog.is/samfelagsmidlar

, , , , , ,

No Comments