Algengar spurningar um markaðsráðgjöf og markaðssetningu

Svör við algengustu spurningunum um markaðsráðgjöfina hjá markadssetning.is, ókeypis greiningartólin og markaðssetningu á íslenskum markaði.

Um ráðgjöfina

Ég hjálpa íslenskum fyrirtækjum að ákveða hverjum þau selja, hvað þau segja og hvar. Gervigreindin vinnur greiningarvinnuna á vefnum, leitinni og samkeppninni, svo tíminn okkar fer í ákvarðanirnar.

Bóka samtal

Bókaðu samtal á markadssetning.is/samband og segðu frá fyrirtækinu og hvar markaðsmálin standa, eða skrifaðu á hallo@markadssetning.is.

Algengar spurningar

Hvað er gervigreindarstudd markaðsráðgjöf?

Ráðgjöf þar sem greiningarvinnan er unnin með gervigreind, á vefnum, leitinni, samkeppninni og gögnunum, en ákvarðanirnar eru teknar með þér af ráðgjafa sem þekkir íslenskan markað.

Fyrir hverja er ráðgjöfin?

Íslensk fyrirtæki sem vilja skýrari stefnu í markaðsmálum, hvort sem þau eru með markaðsfólk eða ekki.

Hver er munurinn á þessu og að spyrja ChatGPT?

ChatGPT svarar almennt. Í ráðgjöfinni er gervigreindin notuð í afmarkaða greiningu á þínum vef, leitinni og samkeppninni, með íslenskum markaðsgögnum, og ráðgjafi sem þekkir íslenskan markað fer yfir niðurstöðurnar og tekur ákvarðanirnar með þér.

Þarf ég menntun í markaðsfræði?

Nei. Ráðgjöfin gerir ekki ráð fyrir markaðsmenntun; þú þarft bara að vita hvað þú vilt selja og hverjum.

Hvað kostar ráðgjöfin?

Það fer eftir umfangi. Við förum yfir það í samtali og þú færð tilboð sem er sniðið að þínu fyrirtæki.

Hvernig byrja ég?

Bókaðu samtal. Ef þú vilt geturðu fyrst keyrt ókeypis greiningu á vefnum þínum; hún fylgir þá fyrirspurninni.

Hvað gera ókeypis greiningartólin?

Vefgreiningin (/profa) les vefinn þinn og gefur fyrstu drög að herferð, GEO-könnunin (/geo) metur hvernig gervigreindarleit skilur vefinn, aðgengisúttektin (/adgengi) athugar hvort allir geti notað hann og sjónræna úttektin (/skapandi-greining) metur auglýsingamynd. Þú þarft ekki að stofna aðgang til að nota þau.

Hvað verður um greininguna mína?

Ef þú bókar samtal úr greiningunni fylgir hún fyrirspurninni, svo við byrjum samtalið með niðurstöðurnar fyrir framan okkur. Spurningar um gögnin þín sendirðu á hallo@markadssetning.is.

Hvað varð um Markaðsvörðinn og áskriftina?

Sjálfsafgreiðslukerfinu hefur verið lokað. Ef þú varst með aðgang og hefur spurningar, hafðu samband á hallo@markadssetning.is.

Hvað er markaðssetning?

Markaðssetning er skipulögð vinna við að kynna vörur eða þjónustu fyrir réttum markhópi, byggja upp vörumerki og auka sölu. Hún nær yfir allt frá greiningu á markaði og samkeppni, til stefnumótunar, auglýsinga, efnisgerðar og mælinga á árangri.

Hvað er stafræn markaðssetning?

Stafræn markaðssetning (e. digital marketing) er markaðssetning á netinu og stafrænum rásum: auglýsingar á samfélagsmiðlum, leitarvélaauglýsingar (Google Ads), leitarvélabestun (SEO), efnismarkaðssetning og tölvupóstsherferðir.

Hvað kostar að auglýsa á Íslandi?

Það fer eftir rásinni. Meta (Facebook og Instagram) kostar um 190–790 kr á hverjar þúsund birtingar, Google leit um 70–350 kr á smell, TikTok um 250–750 kr á þúsund birtingar og LinkedIn er dýrast með 4.150–8.200 kr á þúsund birtingar. Útvarp á RÚV er ódýrasta þekjan á 69–81 kr á þúsund. Tölurnar eru viðmið, staðfest í mars 2026.