Vefgreining markadssetning.is mælir vefinn þinn án gervigreindar. Aðgengi, leitarvélabestun og hraði í síma eru mæld með Google Lighthouse, kóði síðunnar er lesinn og robots.txt segir hvort leitarvélmenni gervigreindar fá að lesa vefinn. Ekkert er giskað og þú þarft ekki að stofna aðgang.
Aðgengisprófin í Google Lighthouse: alt-textar, litaandstæða, merkingar á hnöppum og reitum.
Leitarvélapróf Lighthouse og kóði síðunnar: titill, meta-lýsing, fyrirsagnir og canonical-slóð.
Hraðamæling Google: hvenær stærsta efnið birtist og hvort útlitið flöktir.
Hvort ChatGPT, Claude, Perplexity og fleiri fá að lesa vefinn, og hvort textinn sést án JavaScript.
Sjálfvirk próf finna ekki allt. Aðgengi þarf líka að prófa með fólki og skjálesara, og góð einkunn í leitarvélum segir ekkert um hvort efnið svarar því sem fólk leitar að. Það förum við yfir í markaðsráðgjöfinni.
Bókaðu samtal á markadssetning.is/samband og segðu frá fyrirtækinu og hvar markaðsmálin standa, eða skrifaðu á hallo@markadssetning.is.
Lighthouse er opið prófunartól frá Google sem mælir aðgengi, leitarvélabestun, hraða og góða starfshætti vefsíðu og gefur einkunn frá 0 til 100 í hverjum flokki.
Nei. Allar tölur eru mældar: Lighthouse, kóði síðunnar og robots.txt. Tvær keyrslur á sama vef gefa sömu niðurstöðu, að frátöldu smá flökti í hraðamælingu.
Nei, hún er ókeypis og án skráningar. Ef þú vilt geturðu fengið skýrsluna senda í tölvupósti.