Formáli

Kæri lesandi...eða tilvonandi lesandi. Þetta er jú fyrsti hlutinn og bókin ekki byrjuð.

Ég vill byrja á að þakka þér fyrir að hafa komist svona langt. Það er ekki sjálfgefið að fá einstakling til að stofna aðgang að einhverju svona og vonandi hefur þú gagn og gaman af því sem framundan er.

Stóra spurningin sem bókin sjálf svarar ekki er kannski af hverju?

Eins og ég nefni í textanum um mig þá hef ég starfað við markaðssetningu síðan 2007 og kennt markaðssetningu eða markaðsfræði frá árinu 2013. Þannig að af hverju svarast kannski af ást minni á markaðsfræði og þörf minni fyrir að miðla minni þekkingu áfram. Þannig að með því höfum við svarað spurningunni varðandi hvatann að þessu öllu saman.

Hins vegar er kannski enn betri spurning, af hverju ekki bara gefa þetta út með hefðbundnum leiðum? Mjög góð spurning í sjálfu sér. En það er svo endanlegt eitthvað. Með þessu móti er bókin lifandi og kerfið sem þið lesið bókina í, þótt það sé hrátt að einhverju leiti, er eitthvað sem ég hef einnig búið til.

Bókin sem þið sjáið því hér inni er ekki endanleg. Hún er lifandi í einhverjum skilningi og mun ég áskilja mér rétt til að breyta og bæta efnið sem útskýrir að einhverju leiti kerfið sjálft. En kerfið býður einnig upp á þann möguleika að lesandinn sjálfur getur hripað niður sínar vangaveltur eða svarað spurningum í lok hvers kafla. Þessi svör eru eitthvað sem einungis lesandinn sér og er hugsað sem tækifæri til að spegla sig í efninu hverju sinni.

Fyrst og fremst vona ég að þú tilvonandi lesandi góður hafir gagn og gaman af en það má alltaf senda á mig póst ef það er eitthvað sem þið sjáið eða einhverjar pælingar sem kvikna við lesturinn.

Þórarinn Hjálmarsson