HLUTI 1: GRUNNURINN – FRÁ GREININGU TIL STEFNU

Að byggja upp fyrirtæki eða vörumerki er eins og að byggja hús. Það er freistandi að byrja strax að velja liti á veggina og kaupa húsgögn, en ef grunnurinn og burðarvirkið eru ekki rétt hannað, skiptir það engu máli. Þessi fyrsti hluti bókarinnar snýst um að leggja traustan grunn. Hann snýst um að búa til teikninguna áður en við byrjum að smíða.

Í köflunum sem fylgja munum við fyrst skilja heimspekina sem allt markaðsstarf hvílir á, framkvæma heiðarlega stöðugreiningu á okkur sjálfum og umhverfinu, kynnast mikilvægasta fólkinu í okkar heimi – viðskiptavininum – og að lokum nota alla þessa þekkingu til að móta okkur kristaltæra stefnu. Það er þessi hluti vinnunnar sem er svo mikilvægur því hann mun leiðbeina öllum okkar ákvörðunum í framhaldinu. Þessi vinna leggur grunninn að því að markaðsstarfið verður byggt á af því að en ekki af því bara. Að allar ákvarðanir séu byggðar á gögnum og rökum.

Að loknum þessum hluta muntu ekki lengur skjóta út í bláinn. Þú munt hafa landakort, áttavita og skýran áfangastað.

Til að setja allt í samhengi mun ímyndað fyrirtæki fylgja okkur í þessari vegferð. Fyrirtækið heitir Norðurskinn og framleiðir útivistarfatnað. Eftir því sem bókinni vindur fram munum við nýta Norðurskinn til að átta okkur enn betur á þeim viðfangsefnum sem farið er í gegnum og spegla þau á fyrirtækið.

Í lok hvers kafla eru spurningar sem ég hvet þig til að velta fyrir þér og jafnvel svara. Einnig er möguleiki fyrir þig til að setja fram þínar hugleiðingar og vangaveltur. Öll svör eru bara fyrir þig og engan annan en munu vonandi nýtast þér til að takast á við þann spennandi heim markaðsfræðinnar sem ég er að reyna opna fyrir þér.