Snertifletir (e. Touchpoints) eru allir þeir staðir og stundir þar sem viðskiptavinur, eða mögulegur viðskiptavinur, kemst í snertingu við vörumerkið þitt. Þetta nær yfir allt frá því að sjá auglýsingu til þess að nota vöruna eða hringja í þjónustuver.
Af hverju er þetta mikilvægt?
Heildarupplifun viðskiptavinarins er summa allra þessara snertiflata. Með því að bera kennsl á og greina hvern snertiflöt getur fyrirtæki tryggt samræmi og gæði á hverju einasta skrefi. Það skiptir ekki máli hversu góð auglýsingin er ef upplifunin í versluninni (annar snertiflötur) er slæm.
Hagnýtt dæmi
Helstu snertifletir fyrir veitingastað gætu verið: Instagram prófíllinn, matseðill í glugga, framkoma þjóna, gæði matarins, umgengni á salernum og jafnvel greiðsluposinn.