Um markadssetning.is

markadssetning.is veitir íslenskum fyrirtækjum markaðsráðgjöf. Gervigreindin vinnur greiningarvinnuna á vefnum, leitinni og samkeppninni, svo tíminn í ráðgjöfinni fer í ákvarðanirnar: hverjum á að selja, hvað á að segja og hvar. Á bak við ráðgjöfina stend ég, Þórarinn Hjálmarsson.

Reksturinn

Ég rek markadssetning.is í gegnum félagið mitt, Neðri Hóll Hugmyndahús ehf. Verð ráðgjafarinnar fer eftir umfangi hvers verkefnis og er ákveðið í samtali. Hvernig ráðgjöfin virkar: Samtal: Við förum yfir reksturinn, markmiðin og það sem hefur verið reynt í markaðsmálum. Greining: Gervigreindin greinir vefinn, leitarsýnileika, sýnileika í gervigreindarleit og samkeppnina. Ég fer yfir niðurstöðurnar og dreg fram það sem skiptir máli. Aðgerðaáætlun: Þú færð skýra áætlun: hverjum á að selja, hvað á að segja, á hvaða rásum og hvernig árangur er mældur. Fyrirtæki: Neðri Hóll Hugmyndahús ehf. Kennitala: 470126-2480. VSK-númer: 159950. Rekstrarform: Einkahlutafélag (ehf.). Atvinnugreinaflokkun (ÍSAT): 62.01.0 Hugbúnaðargerð · 70.22.0 Viðskiptaráðgjöf.

Um mig

Þórarinn Hjálmarsson, markaðsfræðingur og kennari. Ég hef unnið við markaðsmál frá 2008: sem markaðsstjóri hjá Kaupási og á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands, sem ráðgjafi, sem aðjúnkt í markaðsfræði við Háskóla Íslands og nú sem forstöðumaður stjórnenda- og tæknifræðslu hjá Akademias. Í dag veiti ég fyrirtækjum markaðsráðgjöf þar sem gervigreindin vinnur greiningarvinnuna og við tökum ákvarðanirnar saman.

Báðum megin borðsins

Sem markaðsstjóri bar ég ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð í markaðsmálum og stýrði teymi. Sem verkefnastjóri sá ég um birtingar og samskipti við auglýsingastofu. Sem ráðgjafi vann ég efni fyrir vefi, vefgreiningar og leitarvélabestun fyrir viðskiptavini, og sem kennari hef ég kennt markaðsfræði við Háskóla Íslands og hjá Akademias. Ráðgjöfin byggir á þessari reynslu og á að enda í ákvörðunum sem fyrirtækið getur framkvæmt.

Ferill

2023 – Forstöðumaður stjórnenda- og tæknifræðslu, Akademias. Ber ábyrgð á lengri námskeiðum, þar á meðal Akademias Executive MBA. Kenni á námskeiðunum Viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur, Stýring markaðsmála, Leiðtogi í þjónustu og þjónustustjórnun og Ofurkraftar í starfi, þar sem venjulegt starfsfólk lærir að vinna alvöru verk með gervigreind. 2018 – 2023 Markaðsstjóri, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Stefnumótun og áætlanagerð í markaðs-, kynningar- og vefmálum sviðsins. Stýrði markaðs- og samskiptateymi og sat í stýrihópi um veftækni HÍ. 2016 – 2018 Aðjúnkt, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Kenndi markaðsfræði í grunn- og meistaranámi og leiðbeindi nemendum við lokaritgerðir. 2014 – 2016 Verkefnastjóri, Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands. Sá um vefsvæði stofnunarinnar og markaðsmál námsleiða hennar: textagerð, samskipti við auglýsingastofu, birtingar og samfélagsmiðla. 2013 – 2014 Ráðgjafi, Kapall Markaðsráðgjöf. Efnisvinnsla fyrir vefi, vefgreiningar, úrvinnsla notendaprófana, leitarvélabestun og ráðgjöf um samfélagsmiðla. 2012 – 2013 Sjálfstætt starfandi markaðsráðgjafi. Markaðsráðgjöf og umsjón samfélagsmiðla fyrir viðskiptavini. 2011 – 2012 Evangelist, Frontur, Bland.is. 2008 – 2011 Markaðsfulltrúi og síðar markaðsstjóri, Kaupás. Markaðsstjóri 2010 til 2011. Byrjaði hjá Kaupási í verslunarstörfum árið 1999.

Samhliða

2026 – Ráðgjafi, ExOS. ExOS byggir stýrikerfi fyrir gervigreindar-agenta í rekstri fyrirtækja. 2026 – Fagráð, Tækniþróunarsjóður. 2017 – Stjórnarmaður, gjaldkeri frá 2019, Félag viðskipta- og hagfræðinga (FVH). 2012 – Stofnandi, Markaðsnördar. Facebook-hópur fyrir samtal fólks sem starfar við markaðsmál á Íslandi. 2011 – Höfundur og eigandi, markadssetning.is.

Menntun

2016 M.Sc. í viðskiptafræði, Háskóli Íslands. Lokaverkefni: Markaðshneigð háskóla. Rannsókn á markaðshneigð meðal starfsmanna Háskóla Íslands. 2014 B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á markaðsmál og alþjóðasamskipti, Háskóli Íslands. Lokaverkefni: Viðskiptabankar, traust, spilling og tryggð.

Hugmyndir sem ég stend fyrir

Gervigreindarlæsi: Stóra færnin næstu árin verður ekki að kunna á tólin heldur að vita hvenær á að nýta vélina, hvað á að fela henni, hvernig á að vinna með henni og hvenær á að láta hana eiga sig. Það verður jafn sjálfsagt og að lesa, skrifa og reikna. Miðlaþröngsýni: Skipulagsheildir velja miðla út frá eigin þekkingu í stað þess að leyfa markhópnum að ráða. Verkefnaþröngsýni: Við skilgreinum verkefnin okkar út frá því hvernig við höfum alltaf leyst þau, ekki út frá því hvað þarf í raun að gerast. Á meðan svo er sjáum við aldrei að vélin gæti tekið helminginn. Gervigreind sem innviðir: Fyrirtæki kaupa gervigreind eins og hugbúnaðarleyfi þegar hún hegðar sér í raun eins og innviðir. Hún borgar sig ekki strax, hún safnast upp, og hún refsar þeim sem bíða.

Það sem ég hef smíðað

Ég smíða sjálfur hugbúnað sem fer í raunverulega notkun, ekki með því að skrifa kóðann heldur með því að stýra gervigreindar-agentum og halda þeim við efnið. Þetta eru verkefni sem ég hef stofnað eða smíðað. Spark: Kennir börnum á aldrinum 10 til 14 ára kjarnann í gervigreindarlæsi. Umsögnin.is: Safnar umsögnum, tengist Google Maps og Tripadvisor og greinir þær. Vaktaplan.is. Nágrannar.is. Bústaðurinn.is. Söguvinur.

Skrif

Markaðssetning fyrir byrjendur: Námsbók um markaðsfræði á íslensku, opin hér á vefnum. Bloggið: Greinar um markaðsmál á íslenskum markaði. Innsýn: Samantekt úr greiningum á hundruðum íslenskra vefja.

Bóka samtal

Ef þú vilt ræða markaðsmál fyrirtækisins, bókaðu samtal og segðu frá rekstrinum og hvar markaðsmálin standa. markadssetning.is/samband eða thorarinn@markadssetning.is